Jólagjöfin í ár:saga afa eða ömmu í hljóði og myndGefa gjafabréf →

Viðtöl við afa og ömmu · í hljóði og mynd

Gjöf sem lifir í kynslóðir

Við tökum upp sögu afa og ömmu, foreldra og annarra ættingja heima hjá þeim. Fjölskyldan fær söguna á eigið lokað svæði til að hlusta, horfa og geyma um ókomin ár.

Engin skuldbinding · Við svörum innan eins virks dags

Hver mynd á sína sögu

Síðasta kynslóðin sem man hvernig þetta var

Afar og ömmur eru síðasta kynslóðin sem getur sagt frá því hvernig lífið var áður en allt breyttist. Þegar þau eru farin fer sagan með þeim.

Sögur sem eru ekki skráðar hverfa með fólkinu sem man þær. Ein klukkustund í viðtali getur varðveitt áratugi af minningum, nöfnum og stöðum.

Svör við spurningum sem þú hefur aldrei spurt, og heimild sem börnin þín, barnabörn og barnabarnabörn geta átt.

Ferlið

Hvernig virkar þetta?

  1. Þið hafið samband

    Við tökum stutt spjall um hvern á að mynda og hvað þið viljið varðveita. Engin skuldbinding.

  2. Aðstandendur svara spurningalista

    Þið fyllið út það sem þið vitið: nöfn, staði, ártöl og sögur. Listinn verður grunnurinn að viðtalinu.

  3. Við tökum viðtalið

    Við komum heim til viðkomandi og tökum upp rólegt samtal. Spurningarnar koma úr ykkar lista.

  4. Efnið fer á lokað svæði

    Við vinnum efnið og setjum það inn. Aðstandendur fá notandanafn og lykilorð og geta hlustað, horft og deilt.

Þetta fáið þið

Lokað svæði fyrir fjölskylduna

Hljóðsagan, myndbandið, ljósmyndirnar og svör aðstandenda á einum stað. Aðeins þeir sem fá aðgang sjá efnið.

  • Aðeins ykkar. Hver fjölskylda fær sitt eigið svæði.
  • Hvar sem er. Virkar í síma, spjaldtölvu og tölvu.
  • Ykkar til að eiga. Hlaðið skránum niður og geymið hvar sem þið viljið.

Jólagjöf

Gefðu minningu í jólagjöf

Saga afa eða ömmu í hljóði og mynd. Þú gefur gjafabréf undir tréð og við tökum viðtalið þegar hentar fjölskyldunni eftir hátíðarnar.

Verð

Veldu hvernig sagan er varðveitt

Öll verð eru með virðisaukaskatti. Viðtalið er tekið heima hjá viðkomandi, og gjöfin hentar vel til að skipta milli systkina.

Hljóð

30 mín.

129.000 kr.

  • Viðtal heima hjá viðkomandi
  • Hljóðvinnsla og klipping
Bóka samtal

Mynd og hljóð

45 mín.

249.000 kr.

  • Viðtal með kvikmyndatökuvél
  • Hljóðvinnsla og klipping
Bóka samtal

Fjölskyldu­heimildarmynd

60 mín.

frá 590.000 kr.

  • Viðtöl við fleiri en einn úr fjölskyldunni
  • Hljóðvinnsla og klipping
  • Ljósmyndir og heimamyndbönd fléttuð inn í viðtölin
  • Endanlegt verð eftir fyrsta samtal
Bóka samtal

Óklippt upptaka 79.000 kr.

Viðtal heima hjá viðkomandi, allt að tvær klukkustundir. Þið fáið hljóðupptökuna óklippta á lokaða svæðið.

Bóka samtal

Spurninga­listinn er grunnurinn

Áður en við komum fá aðstandendur lista með spurningum. Þið fyllið hann út og viðtalið verður byggt á honum, svo sögurnar sem skipta ykkur máli verði sagðar.

Byrjum á spjalli

Segðu okkur frá þeim sem þú vilt varðveita

Bóka samtaleða skrifaðu á info@fjolskyldusaga.is